Kópavogsbraut 78, 200 Kópavogur
96.000.000 Kr.
Hæð/ Hæð og ris
4 herb.
146 m2
96.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1953
Brunabótamat
53.010.000
Fasteignamat
76.650.000

Borgir s. 588-2030 kynnir:

Sérhæð í þríbýli ásamt bílskúr með íbúðaraðstöðu sem er í útleigu. 
Stór lóð (1934 fm)  sem mætti nýta fylgir húsinu. 
Hornlóð á mótum Suðurbrautar og Kópavogsbrautar.
Íbúðin er hæð og ris skráð 113,6 fm og bílskúr skráður 33,1 fm.
Sér inngangur. 
Eigendur hafa skipt lóðinni á milli sín án þess þó að þinglýsa skjali um skiptinguna.
Íbúðin er:
Komið er í hol þaðan sem gengið er í vistaverur á neðri hæð og þaðan stigi upp í rishæð og líka niður í kjallara.
Fyrst er stórt svefnherbergi með gluggum í norður og austur. 
Næst er góð stofa með glugga í austur og suður. Þar útsýni.
Við hliðina á stofu er svo bjart eldhús með miklum hvítum innréttingum, gluggi í suður.Flísar á gólfi.

Frá holi er ágætur stigi upp á rishæð,
Þar góður  stigapallur, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Minna svefnhebergð er með glugga í austur.
Hitt herbergið er rúmgott með gluggum í austur og kvistglugga í suður.
Við hliðina á stærra herberginu er svo rúmgott baðherbergi með sturtuklefa. Kvistgluggi í suður.
Gólfefni á íbúðinni eru parket, flísar og teppi.

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara, bæði innangengt og líka húrð frá garði.
Geymsla í kjallara er sameiginleg með  íbúð 201 en hægt að skipta með vegg samkvæmt eignaskiptasamningi.

Í bílskúrnum er íbúðaraðstaða. Þar eldhúsinnrétting fremst í rými og innaf því snyrting og svefnkrókur.Gólfefni er flísar og parket.Bílskúr er í útleigu.
Austur hluti lóðarinnar tilheyrir þessum eignarhlut þ.e. frá húsgafli, meðfram Suðurbraut niður að Kópavogsbraut.
Efri hlutinn af lóðinni er afmarkaður garður og þar tvö útihús/geymslur.  þar er einnig verönd við húsgaflinn.
Neðri hluta lóðarinnar mætti kannski nýta fyrir gróðurhús eða aðra byggingu en gera þarf formlegan eignaskiptasamning milli eigenda um lóðina.

Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030




 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.000 mvsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.