Um okkur

Borgir fasteignasala var stofnuð árið 1994 af Ægi Breiðfjörð og Sigríði Gunnlaugsdóttur. Heiðarleiki í viðskiptum og tryggð við skjólstæðinga eru aðaláhersla fyrirtækisins. Ægir og Sigríður eru bæði löggiltir fasteignasalar og hafa langa reynslu af fasteignasölu og leigumiðlun.

Fasteignasalan Borgir leitar að öllum tegundum eigna á skrá. Skiptir þar engu um hvort um sé að ræða húsnæði til atvinnurekstrar til sölu, sumarbústaði, jarðir, skrifstofur, býli, iðnaðarhúsnæði, hesthús, gróðurhús, einbýli, parhús, raðhús, fjölbýli, lóðir, hvers kyns íbúðir og híbýli á mörgum hæðum með gott útsýni eða í kjallara. Ef þú vilt selja eign fyrir sanngjarna söluþóknun þá eru Borgir rétta fasteignasalan fyrir þig. 

Öllum er velkomið að kíkja í kaffi eða hringja og fá hverskyns ráðleggingar um allt sem varða fasteignir svo sem fasteignamat fyrir fjármálastofnanir eða ráðleggingar um húsfélög.

Fasteignakaup eru oft á tíðum stærsta fjárfesting sem fólk ræðst í á lífsleiðinni og því skiptir máli að velja fasteignasölu sem vandar til verka og býr yfir mikilli reynslu. Margar fasteignasölur eru á markaðnum og viljum við hjá Borgum standast allan samanburð. Ægir og Sigríður eru stolt af því að hafa starfað við fasteignasölu lengi enda margir fastakúnnar sem eru ánægðir með þjónustuna og velja að skipta aftur og aftur við Borgir. Við hjá Borgum veitum sérhæfða og persónulega þjónustu og vöndum til verka.

 
Skiptu við fagmenn - það borgar sig. 

Borgir ehf.
kt. 671021-1340
www.facebook.com/borgirfasteignasala

Borgir ehf - kt. 671021-1340 - Suðulandsbraut 18 ,108 Reykjvík - Sími: 588 2030 - Fax: 588 2033 - Vsk.nr: 100750 - borgir@borgir.is